Um stofnunina
Þjónustumiðstöð bókasafna á sér langa og merkilega sögu. Hún er sjálfseignastofnun sem var stofnuð samkvæmt skipulagsskrá dagsettri 24. júlí 1978, staðfestri af forseta Íslands 9. ágúst 1978 samkvæmt þágildandi lögum, nr. 20/1964. Stofnunin starfar nú samkvæmt lögum um sjálfseignastofnanir sem stunda atvinnurekstur, nr. 33/1999.
Markmið Þjónustumiðstöðvar bókasafna er að bæta bókasafnaþjónustu á Íslandi og styðja bókasöfnin í að gera lestur, upplýsingar, menntun og menningu aðgengilega almenningi.
Við sérhæfum okkur í bókasafnsbúnaði og vörum fyrir almenningsbókasöfn og bókasöfn í skólum og stofnunum og viljum ávallt veita þjónustu sem hæfir hverju safni.
Starfsfólk
Dagbjört Tryggvadóttir, framkvæmdarstjóri
Ólína Jónsdóttir Lyngmo, framkvæmdarstjóri
Netfang: thjonusta(hjá)thmb.is
Sími: 561-2130
Stjórn 2022-2023
Formaður: Magný Rós Sigurðardóttir
Guðmann Kristþórsson
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Dagný S. Jónsdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir