Lena sýningarstandur – eik og grátt

239.500 kr. m/vsk

Lena er nettur og fjölhæfur sýningarstandur sem er hannaður til að stilla upp safnkosti eins og bókum, tímaritum og dagblöðum á einfaldan og fágaðan hátt. Með tveimur hallandi hillum á hvorri hlið býður Lena upp á góða yfirsýn og auðvelt aðgengi frá báðum hliðum, sem gerir hann tilvalinn fyrir valdar bækur og þema-uppsetningar.

Góð viðbót í bókasöfn, skóla og önnur rými þar sem framsetning skiptir jafn miklu máli og aðgengi.

Athugið að hjólaplata fylgir ekki en er hægt að kaupa sér.

Efni: melamínhúðuð spónaplata, lakkað stál

Ekki lagervara og því getur tekið allt að 10-12 vikur að fá vöruna afhenta.