Neschen libre organic (90 micron)

Price range: 7.300 kr. through 14.800 kr. m/vsk

Yfir 50% af bókaplastinu er framleitt úr endurnýjanlegum hráefnum.

Vandað, tært og glansandi bókaplast sem verndar bækur gegn óhreinindum og sliti. Plastið leggst fallega á bókakápur og gefur þeim tæra og glansandi áferð. Plastið er 90 míkron að þykkt en mjúkt og teygjanlegt í meðförum. Það hentar því best þeim sem hafa reynslu af bókaplöstun.

  • Meira en 50% úr endurnýjanlegum hráefnum – framleitt að hluta úr hráefnum úr plönturíkinu í stað jarðefnaeldsneytis.
  • Mjúkt og teygjanlegt – sveigjanlegt í meðförum og hentar því best þeim sem hafa reynslu af bókaplöstun.
  • Auðvelt að lagfæra – límið nær ekki fullum styrk strax og því er hægt að losa plastið og laga misfellur meðan á ásetningu stendur.
  • Endingargott og auðvelt að þrífa.
  • Vatnsbundið akrýllím án leysiefna. Plastið er án PVC, BPA og APEO.
  • Viðmiðunarlínur á bakpappírnum auðvelda að mæla og sníða plastið í rétta stærð.
  • Hagkvæm nýting – með því að eiga nokkrar breiddir er auðveldara að velja rétta stærð fyrir hverja bók og minnka sóun á plasti.

Allar rúllur eru 25 metra langar og fáanlegar í mismunandi breiddum. Veldu breidd í fellivalmyndinni hér að neðan.

SKU: 181-186 Flokkur: Tags: ,