Opnun á nýju safni Bókasafns Hafnarfjarðar

Nýja safnið í Firði var formlega opnað 13. ágúst. Þar eru ekki aðeins bækur og útlán heldur einnig vinnurými, vinnustofur, upptökustúdíó og aðstaða til sköpunar og samveru. Safnið fær um 125.000 heimsóknir á ári og vonast er til að þeim fjölgi.

Opnunarhátíð fyrir almenning verður í dag, fimmtudag, á milli kl. 16–18 á 2. hæð í Firði og mælum við að sjálfsögðu með að kíkja við og skoða nýja safnið. Safnið er ákaflega vel heppnað og skartar meðal annars hillubúnaði frá Þjónustumiðstöð bókasafna. Sjón er sögu ríkari!